Áfanginn fjallar um kvikmyndasöguna frá upphafi til okkar dags, áhersluatriði verða að þekkja til helstu kvikmynda og tækniþróunar sem hefur mótað þessa listgrein.
- Kennari: Guðbjörg Jónatansdóttir

Mannkynssaga frá steinöld fram til loka fornaldar um 500 e.Kr.. Saga Miðausturlanda, Grikklands og Rómaveldis. Framhaldsáfangi í sögu og undanfari fyrir sögu á 3. þrepi. Viðfangsefni áfangans er klassísk fornaldarsaga sem jafnan er talin vera undirstaða vestrænna nútímasamfélaga, nefnilega Miðausturlanda, Grikklands og Rómaveldis og nálægra samfélaga. Sú saga og tengsl hennar við samfélag nútímans eru skoðuð rækilega og jafnframt er skoðað hvernig birtingarmyndir fornaldar hafa breyst í gegnum tíðina, velta fyrir sér hvernig sagan hefur verið túlkuð og íhuga hvaða tilgangi þær túlkanir þjóna.
- Kennari: Atli Þorsteinsson

Eftir helför nasista gegn gyðingum og fleiri hópum var gjarnan sagt „aldrei aftur“. Það „loforð“ hefur margoft verið svikið síðan þá. Í áfanganum á að skoða 20. og 21. öldina og líta á það sem flokkað hefur verið sem þjóðarmorð og/eða voðaverk en einnig verður skoðað hugtak sem farið var að nota um 1990; þjóðernishreinsanir. Því miður er af mörgu að taka í áfanga sem þessum. Efnistökin verða þau að með lestri, áhorfi og verkefnavinnu eiga nemendur að kynna sér ýmis þjóðarmorð og voðaverk sem framin hafa verið á sl. rúmum hundrað árum einkum af opinberum aðilum eða ríkisstjórnum. Einnig á að skoða refsingar og stríðsglæpadómstóla. Meðal þess sem skoðað verður er: Kongó á Leopoldstímanum, Namibía: Herero fólkið, Armenía 1915, Sovétríkin: hreinsanirnar og hungursneyðin í Úkraínu, helförin, voðaverk Japana í Kína, stóra stökkið og menningarbyltingin í Kína, Kambódía árið núll, Rúanda, Darfúr, Austur Kongó og fleira.
- Kennari: Atli Þorsteinsson

Áfanginn fjallar um það sem kennaranum dettur í hug
- Kennari: Atli Þorsteinsson




