Site announcements

Myndlistarnemendur hjá Sossu

Höfundur Atli Þorsteinsson -
Myndlistarnemendur hjá Sossu

Nemendur í myndlistaráföngum eru duglegir að fara úr húsi og kynna sér myndlist á söfnum og vinnustofum myndlistarmanna. Föstudaginn 11. apríl fóru nemendur í málunaráfanga í heimsókn í vinnustofu Sossu í Reykajnesbæ ásamt kennara sínum Gunnhildi Þórðardóttur-Place. Sossa býr og starfar í Reykjanesbæ og Danmörku. Hún tók vel á móti hópnum og ræddi um starf sitt sem myndlistarmaður auk þess sem hún var að undirbúa sýningu sem er á leið til Danmerkur.

Vörumessa á sal

Höfundur Atli Þorsteinsson -

Vörumessa á sal

Nemendur í frumkvöðlafræði hafa á önninni stofnað fyrirtæki og þróað eigin vörur. Alls voru stofnuð níu fyrirtæki sem taka þátt í Vörumessu Ungra frumkvöðla í Smáralind 17. og 18. apríl. Þar munu 620 nemendur frá 18 framhaldskólum kynna og selja nýsköpun sína.

Til að undirbúa sig héldu hóparnir sína eigin vörumessu á sal skólans fimmtudaginn 9. apríl. Þar kynntu þau sig og vörurnar sem þau hafa þróað. Þar mátti m.a. sjá öpp, skrautmuni, matvörur o.fl.

Við óskum hópunum góðs gengis í Smáralindinni.

Eldri umræðuefni...

Deildir/brautir