|
Titill: Viðhald og umhirða vélbúnaðar í skipum <15m |
||||
|
Skammstöfun : F-SMÁS3EU |
Útgáfunúmer: 3 |
Námsmat: Námsmat, lágmarkseinkunn 6.0 |
Vinnustundir nemenda: 20 klst. |
Kennslustundaviðmið 8 |
|
Kennari: Ragnar Kristjánsson |
||||
|
Lýsing: Viðhald og eigið eftirlit með vél- og rafbúnaði smáskipa. Reglubundin umhirða og notkun gátlista, val varahluta og efna (s.s. smurolíum, kælimiðlum og síum), beiting helstu verkfæra við viðhaldsvinnu. Árlegur undirbúningur undir reglubundnar skylduskoðanir. Þjónustusamningar um viðhald, tilgangur þeirra og umfang. Ganga frá vél og skrokk til vetrargeymslu. |
||||
|
Markmið: Námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: Viðhaldi og eftirliti með mikilvægum vélbúnaði skipa. |
||||
|
Kennsla: Í þessum námsþætti er lögð áhersla á að nemendur öðlist grunnþekkingu á: vélbúnaði og rafbúnaði skipa, spilbúnaði, eldsneytiskerfum og vökvakerfum (glussakerfum). Þeir þekki dælukerfi (lensidælur) og rafgeymakerfi skipa, hleðslu rafgeyma og landtengingu. Þekki lagnakerfi við vél-og rafbúnað skipa. Farið verður yfir nauðsynlegustu varahluti fyrir vélbúnað og rafbúnað. Þeir þekki alla þætti í aðalskoðun skips (botnskoðun, vélaskoðun, búnaðarskoðun og öryggisbúnaðarskoðun) og innihald þjónustusamninga um viðhald vélbúnaðar, tilgang þeirra og umfang. Hann geti lagt mat á ástand véla og bilanagreiningu. Rætt um hvernig á að ganga frá vél og skrokk til vetrargeymslu. Farið yfir öryggismál, umgengni um vélar, ásamt hættum sem starfa geta af vélum og vélbúnaði. |
||||
|
Kennslu- og námsgögn: Kennslubók í vélgæslu (Guðundur Einarsson, Iðnú). Rafkerfi smábáta (Hlöðver Ágústsson, Iðnú) Verkefni frá kennara. (Hér vantar ýtarlegri upplýsingar um viðhald og umhirðu véla. |
||||
- Kennari: Ivar Valbergsson
- Kennari: Ivar Valbergsson
Áfangalýsing:
Í þessum áfanga annast nemendur allan daglegan rekstur vélarrúms frá stjórnstöð, sinna bilanagreiningu og nýta sér upplýsingar frá framleiðendum, afgasvakanum og viðvörunarkerfinu til að tryggja öruggan rekstur vélarrúmsins.
Í áfanganum er kennd öll undirstaða við notkun hermis, ræsing á öllum búnaði vélarrúmsins og rekstur þess með hjálp viðvörunarkerfa. Í lok áfangans eru teknar fyrir gangtruflanir og bilanagreining.
Námsefni:
Allt efni kemur frá kennara / Moodle /
- Kennari: Ivar Valbergsson